2010 jahá...Þórdís Hlín
Gleðilegt nýtt ár krúsídúllurnar mínar!!!
Jæja þá er bara komið 2010... það er alveg merkilegt hvað þetta gerist hratt.... bara fyrir örfáum árum var níutíuogeitthvað... og hvað segir það þá um aldurinn minn? já nei ég er og verð alltaf sama stelpuskottið!
Á Jóladag voru piparkökurnar bakaðar og húsið... það vannst ekki tími til þess fyrr sökum skreppitúrsins míns til Íslands fyrir jólin....en það var líka bara ótrúlega huggulegt að dunda við þetta á jóladeginum sjálfum.

Það er umvafið englum, stjörnum, hreindýrum og regnboga...

Eins og sést þá hefur snjóað hjá okkur... og það er bara allt hvítt úti núna :)
Þann 30.desember átti elsku besta mamman mín afmæli og bauð heim í fiskisúpu, mikið hefði ég viljað vera þar! En við þríeikið fórum í jólatívolíið í staðinn....

Það var mikið stuð og fjör á okkur og hlupum við Lára Huld á milli tækja. Rafnar horfði á okkur stelpurnar.... Þarna er hún í barna fallturninum, mjög mikið fjör!! En mikið svaaaaakalega var kallt. Tær og puttar duttu nánast af vegna kulda, og er það virkilega slæmt....

Klukkan 18 varð allt stappað af fólki og sáum við þessa fínu flugeldasýngu... allt bara fyrir þig mamma!! ;)

Kandýflossinn fékk að vera með okkur á mynd... ;)
Það er alltaf yndislegt að koma heim en eftir þessa tívolíferð var það bestast í heimi... úff brrr...

Þetta er á síðasta degi ársins 2009. Ég sat og pússlaði, Lára Huld ofan í Nóa konfektinu og Rafnar að taka myndir :) ...og allir sáttir ;) hehe...

...og þarna sést það í heild sinni, 1000 pússla pússlið... og táslurnar mínar með... þetta er nýjasta æðið hjá mér :D Rosa gaman!
Lára Huld fór svo yfir til múttu sinnar og Adda, svo við Jón Rafnar vorum aaalein í kotinu yfir áramótin... En við höfðum það ótrúlega gott og skemmtum hvort öðru eins og ávallt ;)
Það vantaði ekkert upp á sprengingar og læti hér og höfðum við dásamlegt útsýni yfir herlegheitin. Við horfðumst nú eiginlega í augu við sprengingarnar þar sem við erum svo hátt uppi, hehe...
Annan janúar 2010 (vá skrítið að skrifa þetta) var okkur boðið í mat og spil upp á Kagså. Þar hittum við hana Hildu Björgu sem var með okkur á Hvanneyri...

...og það var spilað...

...og spilað ...Anna Rún og Hildan í góðum fíling. Jesús hvað maturinn var sjúúúklega góður, nautakjöt og meððí...og bara allt voðalega yndislegt... Takk kærlega fyrir okkur!! Þetta var æðislegt kvöld!
Jólatréð stendur enn hér og er voðalega krúttaralegt með ljósin sín, skrautið og piparkökurnar. Ég tími eiginlega ekki að taka það niður... en ætli það verði ekki gert um helgina...oooo...
Mér finnst eiginlega pínu fyndið hvað danir eiga erfitt með að segja nafnið mitt.. það bættist semsagt enn eitt furðunafnið á mig í blómabúðinni sem ég vann í fyrir jólin... En á mínu útlandaferli eru þau orðin nokkur, eins og: Pórdís, Fórdís, Tórdís, Sausage (ójá undarlegt) og nú síðast Gódís...eða Gúdís... Danirnir eru greinilega ekki að fatta þennan íslenska bókstaf minn... En bara gaman að þessu, thíhí...
Annars er búið að vera voðalega jólalegt hér hjá okkur. Það er búið að snjóa þvílíkum snjófliksum og allt hvítt hér... loksins snjór... en þar af leiðandi er færðin á hjólinu aðeins verri... en maður lætur sig hafa það bara :)
Svo á morgun á mín kæra tengdamóðir afmæli... óskum við henni innilega til hamingju með daginn, knús á þig!
Ég vona að nýja og ferska árið verði öllum ljúft og gott!
Knús á ykkur dúlludúskar!
Jólin 2009Þórdís Hlín
Ég ætla að byrja á að setja hér inn tvær myndir frá skrepp-Íslandsferðinni minni í síðustu viku. Það var voðalega gott að koma heim og fá að hitta fólkið mitt... en líka voða skrítið að fara aftur fyrir jól...
Við mamma skelltum í piparkökur og litlu beibíin (og við) skreyttum af mikilli list! Þarna er Matthildur Birta, Matthías Ingi, Elín Rósa, mamma mín og Lára vinkona ER.

Þarna er sætasta fólkið... þetta eru svo miklir dúllurassar...
En auðvitað voru fáar myndir teknar af fullorðnu fólki...ekki alveg nógu gott mál...
Eftir að ég kom út aftur var skellt í laufabrauðsgerð á íslandsbryggjunni... Það var stuð...

Hér eru útfletjararnir að verki... ávallt hressleiki á staðnum...

....og útskurðarmeistararnir að verki...einbeiting í hámarki :)

Á aðfangadegi skunduðum við alla leið upp á Kagså til Bakarans og spúsu hans.. þau buðu upp á möndlugraut en aldrei fannst mandlan... undarlegt ...fjórða árið í röð sko sem hún ekki finnst!!

Lára Huld með sleikjó frá Íslandi í metrónum á leið í grautinn....

...og Jóli mætti með pakka fyrir alla krakkana...Það var mikill spenningur og gleði hjá börnunum og margar myndavélar voru á lofti... ;)
Gleðileg jól kæru vinir og fjölskylda!!! Ég vona að allir hafi haft það ótrúlega notalegt í gær og í dag....

Jólaskvísur!

...og jólalitlafjölskyldan...

LH opnaði fjöldann allan af pökkum...

Litlan varð mjög glöð þegar hún sá hvað var í stóra pakkanum og sagðist lengi vera búin að óska sér þetta... Þarna er hún komin í náttfötin frá langömmu sinni og teiknaði þangað til hún fór að sofa...
Hún var voða ánægð með allar gjafirnar eins og við Jón Rafnar og þökkum við kærlega fyrir okkur... Við eigum alveg yndislegt fólk í kring um okkur!

Þarna er Lára Huld að horfa á myndina sem hún fékk frá Kertasníki...hann var voða góður við hana enda gaf hún honum tvö kerti... það er líka búið að horfa á Skellibjöllu og fannst henni hún algjört æði!
þarna er hún í gjafaflóðinu, það eru búin að vera kósýheit hér í dag... :) ..enda er rigningin að skola snjónum í burtu hér...voða blautt veður...

Sæti kallinn minn í nýju fötunum að lesa...myndarlegur er hann...

Þetta gaf Lára Huld okkur í jólakjöf. Ótrúlega flott hjá henni skvísunni...Þau eru að gera svakalega flotta hluti á frítídsheimilinu greinilega... :)
Knús á ykkur öll...
Kærar jólakveðjur frá okkur á Elba...
DesemberskvaldurÞórdís Hlín
Það kom að því.. að ég rita eitthvað hingað inn... næstum kominn mánuður síðan síðast... úff, hvað tíminn líður...
Það eru bara alveg að koma jól... það er alveg merkilegt hvað þetta líður...Það verða komin jól áður en maður veit af ...ég ætla að skreppa í 5 daga heim til Íslands til að vera við jarðarför elskulegu Laufeyjar minnar sem kvaddi okkur sunnudaginn 6. desember. Hún var svo yndisleg kona og var mér alltaf svo gó𠆆†
......
En við hjúin skelltum okkur til Árósa fyrir nokkrum vikum. Það var yndislega góð ferð...

Við tókum ekki myndir af bænum heldur bara af okkur sjálfum með nýju tveggja manna regnhlífina ;) Enda var veðrið ekkert upp á sitt besta...

Við settumst inn á kaffihús og svona var stemningin... það sést á veggfóðrinu hehe... Mér fannst hún góð!
Við komum jú heim til Köben...

Þarna erum við að sækja drengi á frítídsheimilið hennar Láru Huldar til að fara með þá heim til Helgu og Adda í legegruppe. Þeir eru flottir!

Þarna er Astrid komin líka og hin börn heimilisins... :)
Svo kom að kleinugerðinni...

Þarna eru þær systur að hnoða og hjálpa til...

Bakarinn sjálfur sá um deigagerðina...

Borðið kom sér einstaklega vel...

Þær smakkast ægilega vel... þarna var steiking enn í gangi ...enda um fimmfalda uppskrift að ræða hér...

Helga steikti eins og vindurinn....

....og Anna Rún líka!
.....Aðventukransinn í ár... Búið að kveikja á fyrsta kertinu, spádómskertinu...

Ég skreytti þennan krans í blómabúðinni sem ég er farin að venja komur mínar í... Já er semsagt í praktík í blómabúð...voða gaman... hún heitir Alle gårdens blomster...
Þetta var styttri útgáfan af þessu bloggi, ég þurrkaði allt út við að koma einu vídjói svona í lokin... frekar svekkjandi... en ég reyni að troða því hingað inn... það er frekar krúttaralegt...
En hér er linkur inn fyrir þá sem vilja ... http://www.flickr.com/photos/45518505@N06/4177678486/
Knús á ykkur yndislega fólk...
Jólist og njótist í vetrardimmunni...
Kveðja
Dísan ykkar...
Heimsókn frá Íslandi...Þórdís Hlín
Það var alveg yndislegt að fá brósa minn og Birtuna mína hingað út til okkar... Við tókum við þeim í slökunarbúðirnar hér og árangurinn var held ég bara svaka góður! Þau fóru frá okkur allavega alveg arfaslök og úthvíld! ;)
Á fimmtudeginum fórum við til Malmö...

Það er svo einfalt að skottast upp í metró og svo lest yfir brúna... Einfalt og þægilegt...
Matthildur Birta hafði það allavega svakalega þægilegt í kerrunni hans Sindra sem kom sér einstaklega vel í ferð sem þessa!
Þetta er svo fallegt fólk!!

Þarna erum við á leiðinni í einhvern hjólatúrinn... MB var ekki alveg með á því að hér í Danmörku er mjög eðlilegt að ferðast um á svona hjólum...fannst þetta ekki töff ... en svo eftir smá skokk með hjólinu skoppaði hún upp í og á grúfu því henni fannst þetta einstaklega hallærislegur ferðamáti... Litla krúttið mitt!! Svo fannst henni þetta alveg ljómandi skemmtilegt!

Þarna var leikið í flottum leiktækjum...

Þeir fullorðnu skemmtu sér ekkert síður... Þeir eru flottir strákarnir mínir, ha!!

Í hjólatúr um Köben... hann tekur sig vel út á hjólinu góða! ..og þær dömur fóru einstaklega vel saman...

Þarna erum við komin í Dýragarðinn. Með heitt kakó og nesti, það var einstaklega kærkomið í þessum kulda!

Þarna eru skvísurnar komnar í náttföt og alveg á kafi að lita og hlusta á Pílu pínu á vínyl...

Þarna er búið að lesa og snúllurnar steinsofnaðar með beibíin sín. Frekar fyndnar frænkur!
Mikil slökun í gangi þarna!
Við söknum þeirra alveg sjúklega mikið en vorum voða glöð að fá að hafa þau hjá okkur í marga daga!
Takk fyrir komuna elsku krúsídúllurnar mínar!
Við skötuhjúin tókum skyndiákvörðun og skelltum okkur til Árósa í tvo daga og var sú ferð yndisleg alveg hreint og munu einhverjar myndir frá þeirri ferð koma inn síðar ;)
Svo gengur ekkert annað en að fara aftur í að baka kleinur, við sáum það að við gerðum engan vegin nóg síðast... eða ...allavega kláruðust þær á örskotsstundu! Jú, keppakeppnin er enn í gangi en ...bara ...en ...kleinur eru bara svooooo góðar!
Svo nálgast jólin óðum! Þannig að við borðum mandarínur villt og galið á þessum bæ! MMmmm dásamlega góð uppfinning!
Það hellirignir í Danmörkinni, voða huggó.... að vera inni... mér fannst ekkert huggulegt við það í dag, þegar ég hjólaði um bæinn og var holdvot og köld! Það mætti fara að sjást snjór!
Jæja rúsínurassar, huggið ykkur óspart, með kertum og kósýheitum!
Dísan...
Fimmti í afmæli ...og síðasta í bili..Þórdís Hlín
Í dag á yndislega lita frænkuskottið mitt afmæli... Elín Rósa er 7 ára í dag!! Innilega til hamingju með daginn rúsínurass...
Í dag er síðasti dagurinn í afmælishrinunni. Fullt af fólki orðið árinu eldri :)

Þarna er hún heima í selinu í svaka stuði.. Matthildur Birta sést þarna í horninu..

Haha Ella sprella tannlausa... Ég vildi að ég gæti knúsað þetta litla yndi...
Svo, eins og venjulega skelli ég inn nýjustu myndunum frá okkur hér í Köben, frá síðustu helgi...
...en þá skárum við út grasker með félögunum í félagsbúinu...

Þarna eru sleikjóar sleiktir og mokað upp úr graskerjum eins og þau hafa aldrei gert annað :)

við Lára Huld að hjálpast að með okkar ker... Þetta var mjög skemmtilegt og allir mjög áhugasamir og duglegir!!

vinkonurnar hreinsuðu kerin að innan eins og sannir graskersáhugamenn...

Það kom mikið graskerskjöt og þarna situr Nitta við að telja graskersfræin...
Planið var að gera graskerssúpu...en hún hefur ekki verið gerð enn... að minnsta kosti ekki af mér... En þetta er glæsilegur vígvöllur... enda fengu fimm grasker skemmtilega andlitslyftingu...

...og svo var skipt um gír... þarna er verið að snúa kleinum. Allir voru mjög áhugasamir og gerðu þetta af mikilli natni ...enda allir mjög spenntir að borða afraksturinn sem smakkaðist að sjálfsögðu ljúffenglega og eins og klenum er einum lagið!
Það stefnir í annan kleinubakstursdag... enda er ekki mikið eftir á þessum bænum allavega... enda svooooo gott...

Þarna eru graskerin okkar Láru Huldar komin heim á svalirnar okkar...
Hriiiikalega svakaleg á svipinn!!
En annars erum við hress... eða ...jú við erum hress þrátt fyrir lasleika ...ávallt!
Knús í hús á alla kalla...og kellingar! ..og ammóskvísur!
Þórdísin...
Fjórði í afmæli!Þórdís Hlín
....reyndar degi of seint... en hann Magnús bróðir minn átti afmæli í gær...15.október. Ég var bara ekkert heima hjá mér til að sinna afmælisbloggi dagsins...En þetta er ekkert smá afmæli...kallinn orðinn 35 ára ...ég vona að það hafi verið dekrað heilan helling við hann ..hann á það skilið.. þessi elska! Til lukku aftur elsku bróðir... Knús á þig!
En hann fær mynd af sér í tilefni afmælisins ;)

Hehe ...þetta er eina myndin sem ég tók af brósa í síðustu Íslandsför okkar... þarna er hann nýkominn niður úr göngum og börnin hans límdust á hann glöð yfir að fá pabba sinn loksins aftur til byggða. Semsagt tekið í Miðfjarðarrétt, við kaffibíl Ingu... sem stendur aaaalltaf fyrir sínu... Það er alltaf alveg toppurinn kaffihlaðborðið hennar ;)
Matthías Ingi er eitthvað voða mikið að tala og Elín Rósa algjörlega tannlaus að framan... krúttulíusar..
En þarna erum við nú komin aftur til Danmerkur ...Fyrir nokkrum vikum fékk aðal vinkonan að gista hjá okkur...

....Þarna liggja þær fyrir framan sjónvarpið og höfðu það sérstaklega huggulegt með gotterí...
Þetta var eiginlega alveg úber huggulegt hjá þeim...

...og svo steinsofnaðar, dúllurnar! Þarna steinsváfu þær eins og prinsessur ;)
...svo er ég búin að lofa mömmu að skella inn mynd af nýja hjólinu okkar...kristjaníjuhjólinu... Ég fer að vinna í því! ;)
Plan helgarinnar er algjörlega frábært... graskersútskurður, kleinubakstur og sund! Getur ekki klikkað! ;)
Hafið það obboslega gott krúttbollurnar mínar!!
Huggulíus...
Þriðji í afmæli!!Þórdís Hlín
Í dag á hún litla bleika frænka mín afmæli... Matthildur Birta er fjögurra ára í dag... Vá hvað það er stutt síðan hún fæddist hér í Danmörkinni. Ótrúlegt hvað tíminn líður... Ég man það eins og í gær þegar ég heyrði fréttirnar að Helga Dögg væri farin af stað... í Danmörku!!! ..ég stóð upp í stiga í stofunni heima og var að raða bókum þegar mér var sagt þetta í símanum...
Hér erum við í réttunum í Miðfirði, Matthildur Birta dró kind með afa sínum ;)

Skvísan skellti sér líka á bak á fák einum.... það er alveg nauðsynlegt í sveitinni..
Réttarferðin í sveitina var alveg dásamleg... það var alveg yndislegt fyrir líkama og sál ;)

Haha þessi mynd er svo tekin heima... ég gaf Matthildi Birtu tvennar nærbuxur ....og auðvitað fór hún í þær... svo í sokkabuxurnar öfugar og næstu nærur yfir sokkabuxurnar... hehe ..hún var ótrúlega flott xD
Öll fjölskyldan kom í mat áður en við fórum aftur til Köben, og hér eru tveir góðir kallar ;)

Þeir bræður létu fara afskaplega vel um sig í sófanum heima ;) hehe þeir eru flottir!

Þessa sætu rófu á Benjamín Páll... varð að skella henni hér inn líka ... Hún semsagt kom með okkur að Þorfinnsstöðum í berjamó...og líkaði það vel :)

Og hér erum við komin aftur til Danmerkur... Íslendingarnir í skólanum með Rafnari hittust í einum garði hér í borg og við grilluðum saman... þegar leið á kvöldið var spreki safnað saman og kveikt uppí þannig að úr varð heljarinnar bál... það var mjög kósý stemning :)

Það var alveg dásamlegt veður hér og þann 19. september fórum við þrjú með Nittu og börnum í lítinn sætan garð með nesti og sátum þar í góðu yfirlæti á meðan börnin léku sér í leiktækjum og trjám... Þarna erum við í miklum pælingum...

Við höfðum það eiginlega frekar gott... Miklar myndatökur í gangi þarna ;)
Síðustu helgi (eða þarsíðustu eiginlega) brunuðum við öll hersingin...ss. við hér og Nitta og hennar beibís... á nýju kristjaníu-hjólunum okkar alla leið upp í Jónshús í sunnudagaskólann.. það var mjög gaman en samt alls ekki sama stemning og ef þetta væri í kirkju og með prest ... svo eru ávextir og brauð á eftir... Krökkunum fannst þetta ljómandi skemmtilegt ;)
Við erum búin að stofna til heljarinnar keppni hér.... sem ber nafnið Keppakepnin... hún felur bætta lifnaðarhætti að öllu leiti í sér... og það eru stig ...og verðlaun.... og hún er öllum opin hvort sem fólk er búsett á Íslandi eða Danmörku...já eða bara hvar sem er því þetta fer allt fram í gegn um netið... já það er allt birt!! Hér getið þið skoðað þessa fríðu síðu...
Það var nóg að gera í barnaafmælunum þessa helgina ... fórum í eitt alla leið upp í Kagså til Freyju Rakelar sem varð eins árs og svo hitt í gær til Sunnevu sem varð alveg 7 ára... það var mikið fjör og mikið gaman og nóg af gúmmelaði í boði ;)
Það er orðið heldur kalt hér í borg og vetrafötin öll komin í notkun... brrr... en maður hjólar sér bara til hita... :)
Annars fíla ég skammdegið mjög vel... nýt þess að kveikja á kertum á kvöldin og láta huggulegheitin fylla íbúðina...
Knúsist rófurnar mínar!!
Afmælisknús á afmælisskottu dagsins frá okkur hér á Elba!!
Kysskyss... Þórdísin
Annar í afmæli!Þórdís Hlín
Litli stuðboltinn hann Matthías Ingi á afmæli í dag. Minnsta barnið bara orðið 3 ára! Ekkert smá sem tíminn líður! Innilega til hamingju með daginn litli snúður! Ég vona að einhver vilji knúsa pjakkinn fyrir okkur hér í Köben...Það eru enn einhverjar réttarmyndir sem koma hér... og reyndar enn fleiri... sem bíða næsta afmælisdags... ;) En...

..þarna eru þau frændsystkinin í kaffipásunni á leiðinni norður... að fá sér sleikjó...

Hér er önnur af þeim krúttum uppi á réttarveggnum... skemmtilegur svipurinn á afmælisdrengnum þarna, hehe...

Hehe þessi mynd finnst mér æði... hann var rosa stoltur af því að hafa dregið kindur! ...enda stóð hann sig með einstakri prýði... mér finnst pabbi minn líka lang flottastur í John Deere gallanum! hehe...
Jæja... meira síðar...
Afmæliskveðjur heim!!
Kærar kveðjur Þórdísin!
Fyrsti í afmæli....Þórdís Hlín
Í dag á hann litli stóri yndislegi bróðursonur minn afmæli! Innnilega til hamingju með daginn elsku Ingvar Andri 9 ára krúttbolti!

Sætasti 9 ára afmælisstrákur sem ég veit um sko... Þarna vorum við á leiðinni í réttir í Miðfirðinum!
Ég vildi að ég gæti knúsað þig í klessu litli ormur...
En annars er mikið af myndum sem ekki hafa fengið að sjást hér og sumar verða að bíða þangað til næst...
En allavega ...fyrir Íslandsför okkar Jón Rafnars brugðum við okkur litla fjölskyldan í sirkus... Cirkus Arli. Það var ljómandi skemmtilegt og skemmtum við fullorðnu okkur ekki síður en barnið!

Lára Huld fékk þetta tryllitæki... svakalega flott ljós sem snúast í hringi... það var algjört nauðsyn að eignast svona tæki, enda ótrúlega flott ;)

Ég skemmti mér best yfir dýrunum sem sýndu listir sínar og vissu alveg nákvæmlega hvað þau áttu að gera, hvenær þau áttu að gera það og hvað þau fengu í verðlaun... þetta var algjört æði...
En svo þann 27. ágúst skottuðumst við Jón Rafnar upp í flugvél með einstaklega hressum flugmanni sem hélt mikla og skemmtilega ræðu um það hvernig maður ætti að haga sér um borð í vél sem þessari... til dæmis áttum við að sýna kurteisi og horfa á flugfreyjurnar kynna öryggisútbúnað vélarinnar en ekki horfa á gólfið eða út um gluggann... og margt fleira sem hann nefndi...
Það var yndislegt að koma til Íslands loksins og hitta allt fólkið okkar þar...
En á föstudeginum brunuðum við Jón Rafnar norður á Hvammstanga og skelltum okkur í stórafmæli ömmu Ölmu... Það var sérdeilis príðileg skemmtun. Það var mjög gaman að heyra ýmsar sögur síðan í gamla daga og það var mikið hlegið! hehe...

Hér er afmælisbarnið, hún var svo fín og sæt! ...hún er það nú reyndar alltaf þessi elska...

Þarna er eitthvert skemmtiatriðið í gangi.. og hluti af veislugestum...

Þegar leið á kvöldið voru stólum og borðum rutt í burtu svo hægt væri að dansa við ljúfa harmonikkutóna... þarna eru þau frændsystkinin Alma Lind og Jón Eyjólfur að taka góð spor... þau eru mjög efnileg og voru þau aaaafar krúttleg þarna dansandi eins og vindurinn...

Þarna situr afar fagurt fólk síðla kvölds.... ;)
Daginn eftir var talið tilvalið að kíkja í Skarðslaug...

Mér fannst það ekki alveg eins tilvalið enda var mér skítkallt við að mynda liðið þar sem það lét ölduganginn leika um kroppana... hehe ...jú það var eiginlega frekar mikill öldugangur...en þær voru víst heitar... en rokið var síður en svo hlýtt... enda vaknaði minn maður með kvefpest daginn eftir, ég veit ekki með þau hin...
Á mánudeginum eftir fórum við Rafnar og Ingibjörg Alma suður til sórborgarinnar.....

Við fórum í heimsón til þessarar litlu frænku...ss. minni frænkunnar...
En þetta eru þær Matthildur Birta og Birgitta Rut... úber sætu frænkur mínar. Við Sverrir komum með okkar fólk...plús Anna Guðrún... Birgitta Rut var nýbúin að eiga eins árs afmæli þannig að við komum með pakka... Af einskærri tilviljun höfðum við keypt nákvæmlega sama kjólinn í sama lit og stærð í afmælisgjöf fyrir barnið.... og fékk hún því tvo bleika kjóla þennan dag. Það mætti halda að fólk talaði ekki saman...en jú meira að segja frekar mikið þarna... hehe..Þetta fannst mér stórkostlega fyndið...
En hjá henni Söndru minni fengum við held ég bestu súkkulaðiköku sem ég hef fengið... Sandra held þú vitið hvað þetta þýðir... karamellukúlupokinn sem við tókum með út er reyndar búinn en það má kannski redda kreminu með einhverjum öðrum hætti...
En við drifum okkur í réttir helgina eftir...norður í Miðfjörð með fjóra litla grísi...

Yndislegustu foreldrar mínir í kaffipásu á leiðinni norður...
Haha... tvö í stíl... svona svaf Matthildur Birta góðan part af leiðinni... litla músin...

...og þarna eru tveir af grísunum komnir upp á réttarvegginn með frekar miklar áhyggjur af þessu öllu saman... þeim leist ekki mjög vel á þetta í byrjun en svo skelltu þau sér í verkin og drógu með afa sínum kindur og voru mjög stollt af því ;) ... Dúllukrúttin mín...
Það munu koma fleiri myndir frá verunni á Íslandi og héðan frá Danmörku líka....en held þetta sé komið gott í bili... lofa að það mun ekki líða langt á milli.. jafnvel bara í þessari viku..hver veit...
Annars er allt gott að frétta þrátt fyrir hálsbólgu og kvef hjá kjellu... ég geri lítið annað en að hósta þessa dagana... en við erum hress á kanntinum...
Knús á línuna... og þó sérstaklega á Ingvar Andra...
Dísan...
Nýjustu myndir!Þórdís Hlín
Það er kominn tími á myndir hér...ekki spurning...Einn daginn ákváðum við Rafnar, Stefán og íbúar Félagsbúsins að skella okkur niður á strönd að grilla því þar eru grill sem allir mega nota... Veðrið var yndislegt og leit út fyrir dásamlegt grillveður við ströndina...

Á leiðinni þangað fóru að koma nokkrir dropar ...en við þrjóskuðumst við...og það kom hellidemba... svona líkt og síðast þegar við grilluðum saman... ég veit ekki alveg hvað það á að þýða... en demban tók fljótt af og kom þá alveg yndislegt veður á okkur...

Búin að borða..huggulegt í góða veðrinu ...og börnin léku sér í leiktækjunum... Eftir á var svo farið heim að spila... dejligt...
Það er alveg yndislegt að hafa ströndina í hjólafæri... og verður maður að nýta sér það til fullnustu...ekki spurning...
Eina helgina brá Rafnar sér til Þýskalands og náði í "litla" frænda sinn... ótrúlega gaman að fá hann til okkar í heimsókn..

Ég smellti mér á eitt grill á 100 krónur í Jysk... það er eiginlega aðeins of ódýrt... en ég keypti það nú samt... og nú eigum við grill...jei.... og þarna var Benni Palli búinn að setja það saman fyrir okkur :)

Svo kom Lára Huld aftur heim eftir að hafa verið á Íslandi í mánuð... Hún var mjög glöð að sjá frænda sinn.
Ég er ekki frá því að hún hafi tekið góðan vaxtarkipp á Íslandinu góða....og var hún sæl og glöð með dvölina þar hjá ömmum, öfum, frænkum og frændum, og brallaði margt skemmtilegt ;) ....
Einn seinnipart drifum við okkur niður að strönd, eins og nokkra aðra daga ;).... strákarnir stukku og böðuðu sig í sjónum...

Stefáni fannst tilvalið að taka Mr.Bean á þetta ..hehe... góður!

Lára Huld óð líka ...og fannst það gaman...
..og litla barnið á heimilinu er allt í einu orðið stórt!
Á mánudaginn síðasta var fyrsti skóladagur Láru Huldar í skólanum á Íslandsbryggju, en hann heitir á dönsku Skolen på Islands Brygge... Hún var mjög spennt að byrja loksins í grunnskóla...

Hér er hún að hjóla í skólann með nýju skólatöskuna sína...

...og hér er hún á skólalóðinni...

Þarna eru þau komin í stofuna sína og þar biðu þeirra bækur og derhúfur...

Þessi mynd er tekin í gegn um hurðina...glerhurð sko.. og hennar bekkur heitir 0.X eða Núllti Ex...
Í dag er hennar þriðji skóladagur. Eftir skóla fer hún beint á Fritidsheimilið og við sækjum hana þangað... Þetta eru miklar breytingar frá því að fara með hana á leikskólann og fannst okkur Rafnari mjög skrítið að skilja hana bara eftir svona "eina" í stórum skólanum fyrsta alvöru skóladaginn...En það venst og það er haldið vel utan um nýju skólabörnin ;) og henni líkar þetta mjög vel og er hress og kát þegar hún hefur verið sótt...
Stefán átti afmæli í gær...

Hann varð 28 eins og sjá má... og fékk kökur að sjálfsögðu... og nýtínd brómber sem hann tíndi sjálfur... mmm svo gott! Kökur og spil...klikkar ekki... ;)
Þetta er svona eitt og annað sem á daga okkar hefur drifið og aðeins það sem hefur verið fest á ...digital form...
Sem sagt ..við höfum það gott öllsömul í góða veðrinu hér í Köben...
Takk og bless...
Huggulíus
